Um Fjarupptökur
Fjarupptökur.is býður upp á faglega tónlistarframleiðslu, upptökustjórn og hljóðvinnslu fyrir lagahöfunda, söngvara, hljómsveitir og alla sem vilja koma tónlist sinni í réttan búning.
Að baki Fjarupptökum stendur Snorri Snorrason, söngvari, tónlistarmaður og upptökustjóri með 30 ára reynslu í tónlist. Fjarupptökur voru stofnaðar árið 2008 með það að markmiði að gera faglega tónlistarvinnslu aðgengilega fyrir alla, jafnt byrjendur sem lengra komna.
Frá hugmynd að fullunnu lagi
Hvort sem þú ert með einfalda lagahugmynd, tilbúna upptöku eða tónlist sem þarfnast frekari vinnslu, hjálpum við þér að ná fram þeirri hljóðmynd sem þú hefur í huga.
Við bjóðum upp á:
Tónlistarframleiðslu og upptökustjórn – faglega leiðsögn og umsjón með verkefninu frá upphafi til enda.
Útsetningar og hljóðfæraleik – mótun hljómmyndar og hljóðfæraleik með aðstoð reyndra atvinnuhljóðfæraleikara eftir þörfum.
Söngupptökur og bakraddir – upptökur og úrvinnslu söngs.
Hljóðblöndun og lokavinnslu – faglegan frágang tónlistar, tilbúinnar til útgáfu.
Lagfæringar og endurvinnslu AI-laga – þróun og endurbætur á gervigreindargerðri tónlist með hljóðfæraleik, söng og hljóðvinnslu.
Persónuleg þjónusta og fagleg vinnubrögð
Hjá Fjarupptökum fær hvert verkefni persónulega athygli. Með áratuga reynslu í tónlist, útsetningum og upptökum leggjum við áherslu á að finna rétta hljóminn fyrir hvert lag og varðveita sérkenni höfundarins.
Þú þarft hvorki fullbúna útsetningu né reynslu af hljóðveri til að byrja. Einföld upptaka úr símanum getur verið nóg. Við vinnum síðan með þér að því að þróa hugmyndina í fullbúna upptöku.
Þú kemur með tónlistina. Við leggjum til reynsluna, þekkinguna og hljóminn.
Snorri Snorrason
Tónlistarmaður og upptökustjóri – Fjarupptökur.is



























