Fjarupptökur bjóða upp á útsetningar, upptökustjórn, söngvara, hljóðfæraleik og allt sem þarf til að gera lagið þitt tilbúið til útgáfu.

Hvort sem þig vantar stúdíóupptöku á einu lagi, söngupptöku, upptöku á einstökum hljóðfærum, upptökustjórn, útsetningar, hljóðblöndun eða jafnvel að taka upp heila plötu, þá getum við hjálpað þér.

Svona vinnum við

1. Þú sendir okkur lagið

Sendu okkur lagið þitt ásamt stuttri lýsingu á því hvernig þú sérð það fyrir þér. Það er alveg nóg að hafa tekið upp prufu á símann. Ef þú átt enga upptöku geturðu komið til okkar í stúdíó og spilað eða sungið lagið inn þar.

Þetta verður grunnurinn sem við styðjumst við þegar lagið er útsett og tekið upp.

2. Við mótum útsetninguna

Við finnum laginu réttan farveg og vinnum grunnútsetningu. Þegar þú ert ánægð/ur með hana hefst upptökuferlið.

3. Við sjáum um hljóðfæraleik og upptökur

Við útvegum það sem lagið krefst, hvort sem það eru trommur, bassi, gítarar, hljómborð, söngur eða bakraddir. Allt er unnið í samráði við þig og samkvæmt þínum óskum.

4. Þú færð að fylgjast með ferlinu

Við sendum þér vinnsluútgáfu (grunnmix) eða bjóðum þér í hljóðverið til að hlusta á það sem komið er. Þar geturðu komið með athugasemdir og tillögur að breytingum áður en haldið er lengra.

5. Lokafrágangur

Þegar þú ert ánægð/ur með útkomuna er lagið hljóðblandað og masterað svo það sé tilbúið til hlustunar og útgáfu.

Hér fyrir neðan má heyra brot úr lögum sem við höfum unnið að.